Gönguguðsþjónusta kl. 11:00. Gengið frá Árbæjarkirkju um Elliðaárdalinn og staldrað við á nokkrum stöðum í söng og bæn. Gangan tekur um það bil klukkutíma með hléum.  sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn, Emma Eyþórsdóttir leikur á Ukulele og Krisztina Kalló organisti leikur á flautu. Á eftir er messukaffi í kirkjunni.