Það verður líf og fjör í barnastarfi Árbæjarkirkju í vetur og ættu allir krakkar að finna eitthvað við sitt hæfi. Það hefur löngum verið mikill metnaður að halda úti öflugu barna og unglingastarfi í söfnuðinum. Starfið er  í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.

Tilgangurinn með starfinu er að kenna börnunum í gegnum sögur, söngva og leiki um kristna trú og siðfræði, gera hjálparstarfsverkefni og margt fleira.

Skrá þarf sérstaklega börnin í STN (6-9 ára) og TTT-starf (10-12 ára). Allt barna- og unglingastarf á vegum Árbæjarkirkju er ókeypis. STN og TTT- starf er á eftirtöldum tímasetningum:

SAFNAÐARHEIMILI ÁRBÆJARKIRKJU

1. bekkur. Þriðjudagar kl. 14:00 – 14:45

2. -3. bekkur. Þriðjudagar kl.15:00 – 15.45

4. -7. bekkur.  Þriðjudagar kl. 16:00 – 17:00

Allar nánari upplýsingar um barna- og unglingastarf Árbæjarkirkju veitir Ingunn Björk Jónsdóttir á netfangið:ingunn@arbaejarkirkja.is eða í síma 587-2405