Reynslusporin tólf

  1. Við viðurkenndum vanmátt okkar vegna aðskilnaðar frá Guði og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi.
  2. Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur heil að nýju.
  3. Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum. 
  4. Við gerðum óttalaust, nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar.
  5. Við viðurkenndum afdráttarlaust  fyrir Guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar.
  6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla þessa skapgerðarbresti.
  7. Við báðum Guð í auðmýkt að fjarlægja brestina.
  8. Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar.
  9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðlaust þar sem því var við komið, svo fremi sem það særði engan.
  10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust.
  11. Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um þekkingu á því sem hann ætlar okkur og styrk til að framkvæma það.
  12. Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.

 

Ritningargreinar við Tólf-sporin

  1. Ég veit að ekki býr neitt gott í mér, það er, í spilltu eðli mínu. Að vilja veitist mér auðvelt, en mig skortir alla getu til góðs. Róm. 7:18
  2. Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar. Fil. 2:13
  3. Því brýni ég ykkur systkin, að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi. Róm.12:1
  4. Rannsökum breytni vora og prófum og snúum aftur til Drottins. Harmlj. 3:40
  5. Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru, til þess að þið verðið heilbrigð. Jak. 5:16a
  6. Auðmýkið ykkur fyrir Drottni og hann mun upphefja ykkur. Jak.4:10
  7. Ef við játum syndir okkar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af öllu ranglæti. I. Jóh.1:9
  8. Og eins og þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo skuluð þér og þeim gera. Lúk. 6:31
  9. Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar , að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér, þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína. Matt. 5:23-24
  10. Sá er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki. I. Kor.10:12
  11. Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki. Kol.3:16a
  12. Bræður mínir og systur! Ef einhver er staðinn að misgjörð, þá leiðréttið þið, sem andleg eruð, þann mann með hógværð. Og hafið gát á sjálfum ykkur, að þið freistist ekki líka. Gal.6:1