Tólf sporin-andlegt ferðalag hjálpar okkur að ná tökum á lífi okkar og er vegvísir til varanlegra breytinga. 

-Okkur líður vel með öðru fólki, einnig fólki sem hefur völd eða er ráðríkt.

-Við höfum sterka sjálfsmynd og erum almennt ánægð með okkur sjálf.

-Við meðtökum og nýtum okkur persónulega gagnrýni á jákvæðan hátt.

-Þegar við horfumst í augu við okkar eigið lífsmynstur, sjáum við að við löðumst að styrkleika og skiljum veikleikann í samskiptum okkar við aðra.

-Við erum í bata vegna þess að við sýnum sjálfum okkur kærleika og umhyggju.

-Við öxlum ábyrgð á okkar eigin hugsunum og gjörðum.

-Okkur líður vel með að taka okkar eigin málstað þegar það á við.

-Við njótum þess að eiga frið og æðruleysi og treystum því að Guð leiði bata okkar.

-Okkur þykir vænt um fólk sem elskar og annast um sjálft sig.

-Við erum frjáls að því að finna til og láta í ljós tilfinningar okkar, jafnvel þegar þær eru sársaukafullar.

-Við höfum heilbrigt sjálfsálit.

Við ræktum með okkur nýja færni sem leyfir okkur að eiga frumkvæði og fullmóta hugmyndir og framtak.

-Við hegðum okkur af varkárni með því að leiða hugann að annars konar hegðun og hvaða hugsanlegar afleiðingar hún gæti haft.

-Við treystum Kristi betur og betur sem okkar Æðra mætti.