Guðsþjónusta kl:11:00. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts kemur í heimsókn og spilar nokkur lög. Stjórnandi þeirra er Snorri Heimisson. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló  og sr. Petrína Mjöll þjónar fyrir altari og prédikar.

Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar og Aðalheiðar. Kaffi og spjall eftir guðsþjónustuna.