Guðsþjónusta kl. 11:00. Söngkonan ástsæla, Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú eins og hún er oftast kölluð kemur í heimsókn og syngur dægurlög. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.

Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.