Fundur í kvenfélagi Árbæjarsóknar
Fundur í kvenfélagi Árbæjarsóknar, mánudaginn 1. október kl. 19:30. Allir hjartanlega velkomnir
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 30. september
Guðsþjónusta kl.11:00. Skólahljómsveit Árbæjar-og Breiðholts undir stjórn Snorra Heimissonar kemur í heimsókn og flytur nokkur lög. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló og sr. Petrína Mjöll predikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á [...]
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli – sunnudaginn 23. september
Guðsþjónusta kl.11.00 sr. Þór Hauksson þjónar og prédikar. Krisztina Kalló Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir söng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Önnu Siggu og Aðalheiðar. Kaffi og spjall á eftir.
Guðsþjónusta, sunnudagaskóli og fundur með foreldrum fermingarbarna
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli, sunnudaginn 16. september kl. 11:00. Fermingarbörn lesa ritningalestra og sýna helgileik. Birta Rós Valsdóttir syngur. Prestar sr. Þór Hauksson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztina Kalló Szklenár, [...]
Sunnudagaskólahátíð 9. september -Hoppukastali, pylsur og mikil gleði!
Sunnudagaskólahátíð kl. 11:00. Við fögnum haustinu saman í söng og gleði. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn Björk Jónsdóttir djákni leiða stundina. Benjamín Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Á eftir verður hoppukastali fyrir börnin og [...]
Foreldramorgnar Árbæjarkirkju
Foreldrarmorgnar hefjast að nýju þriðjudaginn 4. september (kl. 10:00-12:00) í safnaðarheimili Árbæjarkirkju og miðvikudaginn 5. september (kl.9:30- 11:30) í félagsmiðstöðinni Holtinu, Norðlingaholti. Einu sinni í mánuði er boðið upp á fyrirlestra sem snúa að ummönnun [...]
Guðsþjónusta og upphaf barnastarfs kirkjunnar kl.11.00 sunnudaginn 2. september 2018
Guðsþjónusta kl.11.00 sr. Þór Hauksson þjónar og prédikar. Krisztina K. Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir söng. Upphaf sunnudagsskólans í safnaðarheimilinu á sama tíma. Anna Sigga og Erla Mist sjá um stundina. Kaffi og samfélag á eftir
Barnastarfið hefst á ný
10-12 ára starf Árbæjarkirkju hefst að loknu sumarfríi mánudaginn 3. september í Norðlingaholti og þriðjudaginn 4. september í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Á hverjum fundi er eitthvað spennandi á dagskrá.Tímasetningar eru sem hér segir: Árbæjarkirkja. TTT-starf 4.-7. [...]
Hvers vegna -messa? sunnudaginn 26. ágúst kl. 11
Hvers vegna -messa? kl. 11:00. Hvers vegna er verið að standa upp í kirkjunni? Af hverju syngur presturinn svona skringilega? Hvers vegna signa sig? Um leið og við tökum þátt í messunni fáum við skýringar [...]