Gengið verður frá Árbæjarkirkju kl. 11.00 sunnudaginn 15. júní og niður í Elliðarárdal, stoppað á nokkrum stöðum til íhugunar og bænar. Við tökum kaffið með okkur út og setjumst niður í grasið.
Sr. Dagur Fannar leiðir stundina, Krisztina K. Szklenár leiðir okkur í sönginn ásamt meðlimum kórmeðlumum úr kirkjukór Árbæjarkirkju og Magnús Sævar kirkjuvörðurinn okkar allra verður í góðum gír eins og venjulega.