Guðsþjónusta kl. 11. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts kemur í heimsókn og leikur nokkur lög. Stjórnandi sveitarinnar er Hanna O’Connor. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló organista. Sr. Petrína Mjöll prédikar og þjónar fyrir altari. Hrekkjavökusunnudagaskóli verður á sama tíma í safnaðarheimilinu þar sem öll börn eru hvött til að mæta í búningum. Leiðtogar sunnudagaskólans eru þau: Andrea Anna, Thelma Rós og Sigurður Óli . Kaffi og spjall eftir stundina.