Foreldramorgnar hefjast að ný í Norðlingaholti miðvikudaginn 1. september. Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 9:30-11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu Norðlingaholti. Foreldramorgnar eru opið hús fyrir foreldra og börn og eru öllum opnir.
Þar gefst tækifæri til að spjalla saman og deila reynslu sinni. Allir nýbakaðir foreldrar sem og dagforeldrar velkomnir.
Í vetur verður auk þess boðið upp fræðsluerindi sem tengjast ummönnun ungra barna einu sinni í mánuði í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
Boðið upp á kaffi og léttar veitingar