Guðsþjónusta kl. 11:00. Nýstofnaður barnakór kirkjunnar syngur. Stjórnandi kórsins er Kristín Jóhannesdóttir. Þorgerður Þorkelsdóttir leikur á horn. sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szkláner organista.

Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Hrannars Inga Arnarssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.