Gleðilegt ár og þökk fyrir það gamla.   Guðsþjónustuhaldið heldur sínu á nýju ári.  Sunnudaginn 7. janúar er guðsþjónusta og sunnudagskólinn kl.11.00.  sr. Þór Hauksson þjónar og prédikar.  Kristina Kalló Szklenár organisti og félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng.  Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Önnu Siggu og Aðalheiðar.  Kirkjukaffi á eftir.