12919755_1991724554386595_7384318109423943419_nSjálfstyrkingarnámskeiðið Konur eru konum bestar verður haldið hér í kirkjunni miðvikudagskvöldin 20. og 27. apríl frá kl. 19-22. Á námskeiðinu er bent á leiðir til þess að byggja sig upp og hlú að sjálfri sér. Námskeið þetta hefur notið fádæma vinsælda innan kirkjunnar síðustu 25 árin. Það hefur verið haldið víðsvegar um landið og margar konur lýst ánægju sinni með það. Námskeiðið er opið öllum konum 18 ára og eldri og kostar 1500 krónur. Leiðbeinandi er sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Skráning á námskeiðið er í gegnum tölvupóst á netfangið: petrina@arbaejarkirkja.is eða í gegnum síma Árbæjarkirkju: 587-2405