DSCF1306Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju og alla miðvikudaga kl. 9:30-11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu, Norðlingaholti*

Spjall og notaleg upplifun fyrir foreldra og börn.
Boðið upp á morgunverð.
Einu sinni í mánuði eru sérstakir fyrirlestrar. Dagskrá fram til vors 2016 er eftirfarandi:

2. febrúar kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
UNGBARNANUDD  Hrönn Guðjónsdóttir, heilsunuddari og ungbarnanuddkennari, kennir undirstöðuatriði í ungbarnanuddi.**

1. mars kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
SJÁLFSSTYRKING EFTIR BARNSBURР Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir fjallar um sjálfstyrkingu í tengslum við foreldrahlutverkið.

12. april  kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
SKYNDIHJÁLP UNGBARNA Kennd verður endurlífgun, hjartahnoð og blástursaðferð, losun aðskotahluta úr hálsi og hitakrampa hjá börnum

3. maí kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
RÁÐGJÖF FRÁ HJÚKRUNARFRÆÐI  Bergljót Inga Kvaran, hjúkrunarfræðingur, veitir ráðgjöf um næringu barna.
* Bæði fyrir foreldra og dagforeldra
**Koma þarf með þykkt og mjúkt handklæði til að hafa undir börnunum