DSCF1246Aðfangadagskvöld 24. desember

Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Bergþór Pálsson syngur. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn kórstjórans Krisztinu K. Szklenár.

Miðnæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Martial Nardeau leikur á þverflautu. Einsöngur Þóra Einarsdóttir. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn kórstjórans Krisztinu K. Szklenár.

Jóladagur 25. desember

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Sólrún Gunnarsdóttir leikur á fiðlu. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn kórstjórans Krisztinu K. Szklenár.

Annar dagur jóla 26. desember

Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11:00. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur. Undirleikur Kjartan Jósefsson Ognibene.

Gamlársdagur 31. desember

Hátíðarguðsþjónusta kl. 17:00. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn Ómars Óskarssonar organista.

Nýársdagur 1. janúar 2016.

Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju syngur.