Jól í skókassa 2015Líkt og undanfarin ár tók barna- og unglingastarf Árbæjarkirkju þátt í verkefninu Jól í skókassa. Í ár bárust 34 gjafir frá Árbæjarkirkju í Jól í skókassa. Hver einasta gjöf skiptir máli því hún er gjöf til barns sem býr við erfiðar aðstæður í Úkraínu hvort sem það er munaðarlaust, fatlað, sjúkt eða býr við fátækt. Með þessum gjöfum gleðjum við börn sem fá jólagjöf um þessi jól. Í ár söfnuðust rúmlega 5.300 gjafir á landinu öllu og er þetta í tólfta sinn sem þessi söfnun fer fram. Kærar þakkir fyrir fallegar gjafir og góða þátttöku.