IMG_7130Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga kl. 10:00 – 12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju og alla miðvikudaga kl. 9:30-11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu Norðlingaholti.

Spjall og notaleg upplifun fyrir foreldra og börn.

Boðið upp á morgunverð.

Einu sinni í mánuði eru sérstakir fyrirlestrar. Það sem framundan er fram til áramóta er eftirfarandi:

22. september kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. SVEFN OG SVEFNVENJUR UNGBARNA Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi, verður með fræðslu og ráðgjöf um svefn barna.

6. október kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. MEÐGÖNGUSTUÐNINGUR Bjargey Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi, fæðingardoula og höfuðbeina- og spjaldhryggjar-meðferðaraðili, mun segja frá starfi sínu með fjölskyldum en hún hefur sérhæft sig í stuðningi við mæður á meðgöngu og eftir fæðingu.

13. október kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. NÆRINGARRÁÐJÖF Elín Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, verður með fræðslu um mataræði og næringu ungbarna.

3. nóvember kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. BRJÓSTAGJAFARÁÐGJÖF Guðrún Jónasdóttir, brjóstagjafaráðgjafi, veitir ráðgjöf og fræðslu um brjóstagjöf.

1. desember kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. SJÁLFSSTYRKING EFTIR BARNSBURÐ Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir fjallar um sjálfstyrkingu í tengslum við foreldrahlutverkið.