sveit

Sunnudaginn 18. maí kl. 10:30

Sunnudaginn 18. maí ætlum við í Árbæjarkirkju að fara saman í sveitaferð. Ferðinni er heitið að Vorsabæ 2, á Skeiðum. Vorsabær 2 er alvöru bóndabær. Þar er stundaður blandaður búrekstur. Á bænum eru hestar, kýr, kindur, geitur og íslenskar hænur. Vonandi verðum svo heppin að sjá lamb fæðast.

Boðið er upp á grillaðar pylsur, kaffi og svala fyrir börnin. Lagt verður að stað með rútu frá Árbæjarkirkju kl. 10:30 og kostnaði við ferðina er stillt í hóf eða 1.000 kr á manninn. Ókeypis er fyrir börn tveggja ára og yngri.

Skráning og nánari upplýsingar fara fram á netfanginu ingunn@arbaejarkirkja.is, eða í síma 587-2405.