UngbarnForeldramorgnar eru þriðjudaga kl. 10 – 12 í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju og alla miðvikudaga kl. 9:30 – 11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu (gamla Mesthúsinu) í Norðlingaholti.

Notaleg upplifun fyrir foreldra og börn.  Boðið upp á morgunverð.

Spennandi dagskrá, uppákomur og fyrirlestar einu sinni í mánuði. Það sem framundan er meðal annars:

4. febrúar.  Svefnráðgjöf.  Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi, verður með fræðslu og ráðgjöf um svefn barna.

11. mars.  Sjálfstyrking.  Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, fjallar um sjálfsstyrkingu eftir barnsburð.

1. apríl.  Agavandamál. Lone Jensen, verkefnastjóri Þroska- og hegðunarstöðvar, fjallar um agavandamál barna

6. maí.  Skyndihjálp barna