UngbarnÞriðjudaginn 29. október í safnaðarheimili Árbæjarkirkju  

Umhverfisstofnun kynnir verkefnið Ágætis byrjun. Allir foreldrar fá gefins poka með svansmerktum vörum. Boðið upp á léttan morgunverð. Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar eru þriðjudaga kl. 10 – 12 í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju og alla miðvikudaga kl. 9:30 – 11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu (gamla Mesthúsinu) í Norðlingaholti.   Notaleg upplifun fyrir foreldra og börn. Spennandi dagskrá, uppákomur og fyrirlestar einu sinni í mánuði. Það sem framundan er fram að áramótum er meðal annars: 25. sepember í Norðlingaholti  og 1. október í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi, verður með fræðslu og ráðgjöf um svefn barna.

23. október í Norðlingaholti og 29. október í safnaðarheimili Árbæjarkirkju Kynning Umhverfisstofnunar á verkefninu, Ágætis byrjun. Allir foreldrar fá gefins poka með svansmerktum vörum.

5. nóvember  í safnaðarheimili Árbæjarkirkju og 6. nóvember í Norðlingaholti Lean Laundry kynnir stafrófs -smáforritið SOFFíU fyrir tölvur og spjaldtölvur sem kennir börnum að telja, læra liti og form.

19. nóvember í safnaðarheimili Árbæjarkirkju og 20. nóvember í Norðlingaholti Elín Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur fjallar um næringu og svefn ungbarna.