1.7331.big[1]

Vikuna 22.-29. september er hausthátíð í Árbæjarkirkju. Kvöldmessa með Jóni Jónssyni, útimarkaður og tónleikar er meðal þess sem á dagskrá er þessa viku.

 

Vikuna 22.- 29. september verður blásið til hausthátíðar í Árbæjarkirkju. Meðal þess sem verður á döfinni er kvöldmessa með Jóni Jónssyni,  tónleikar með Ellen Kristjánsdóttur, myndlistarsýning og fræðsluerindi ásamt fleirri viðburðum.

Miðvikudagur 25. september

kl. 17:30 – 19:00 Gospelkór með opna æfingu

kl. 20 tónleikar í Árbæjarkirkju – fram koma Einar Clausen, Helgi Þór, Matthías Stefánsson – ókeypis

Fimmtudagur 26. september

kl. 20 Kirkjukór Árbæjarkirkju með tónleika og kaffi á eftir – kr. 1.000

Föstudagur 27. september

kl. 20 – Tónleikar í Árbæjarkirkju – Ellen Kristjánsdóttir og Örn Arnarsson – Aðgangseyrir kr. 1.000

Sunnudagur 29. september

kl. 11 Uppskerudagurinn – Guðþjónusta og sunnudagaskóli í Safnaðarheimili. Skólahljómsveit Breiðholts og Árbæjar

Útimarkaður –

  • grænmetismarkaður
  • og allir sem vilja mega koma með dót að heiman

kl. 16 Þóra Gylfadóttir heldur tónleika í Árbæjarkirkju – Aðgangseyrir kr. 1.500