Á sunnudaginn verður notaleg stund í kirkjunni kl. 11. Við höfum guðsþjónustu með einföldu sniði, hlýðum á guðspjall dagsins og hugleiðingu úr frá því, syngjum sumarlega sálma og biðjum saman. Sr. Þór Hauksson og Margrét Sigurðardóttir píanóleikari leiða stundina. Félagar úr kirkjukórnum leiða söng. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og meðlæti á eftir. Verið hjartanlega velkomin í Árbæjarkirkju á sunnudaginn.