Það verður fjör í Árbæjarkirkju á sunnudaginn kl. 11. Þá verður fjöldkylduguðsþjónusta sem þau Díana og Fritz sjá um og Margrét leikur á píanóið. Unglingar úr æskulýðsfélaginu Sakúl aðstoða. Boðið verður upp á grillaðar pylsur að stundinni lokinni. Við hvetjum börnin í hverfinu til að mæta með mömmu, pabba, afa, ömmu, frænda og frænku. Velkomin í Árbæjarkirkju!