Þann 4. desember er von á góðum gesti í foreldramorgna í Safanaðrheimili Árbæjarkirkju. Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi verður með fræðslu og veitir ráðgjöf um svefn barna.

Foreldrarmorgnar eru í Árbæjarkirkju alla þriðjudaga milli kl. 10- 12. þar gefst foreldrum kostur á að hittast, spjalla og læra hvert af öðru.

Dagskrá sem er sniðin eftir þörfum og óskum foreldranna hverju sinni. Léttar veitingar í boði kirkjunnar.