Barnastarf Árbæjarkirkju tekur í þessari viku þátt í verkefninu Jól í skókassa í samstarfi við KFUM &.KFUK Börnin koma gjafir og skókassa að heiman í barnastarf kirkjunnar. Skókassarnir verða svo sendir til Úkraínu. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil fátækt. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra.