Sameiginleg útimessa Árbæjar, Grafarvogs og Grafarholtssafnaða á Nónhæð. Árbæjarsöfnuður fer fyrir guðsþjónustunni í ár. sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar og prédikar. Kristina K. Szklenár organisti. Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Grill og meðlæti á eftir. Hægt er að komast á staðinn á einkabíl eða ganga frá sóknarkirkjunum að Nónhæð. Lagt af stað frá Árbæjarkirkju kl.10.00 (Staðsetning trjálundarins Nónhæð er rétt austan við SÁÁ)