Hátíðarguðsþjónusta kl.14.00 á degi aldraðra – Uppstigningadegi (ath.breyttur messutími) sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari. Krizstina K. Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Sólrún Gunnarsdóttir leikur á fiðlu. Einar Clausen einsöngur.  Handavinnusýning eldri borgara í anddyri kirkjunnar.  Konur í Soroptimistaklúbbi Árbæjar bjóða í hátíðarkaffi í safnaðarheimili kirkjunnar eftir messu.