Við upphaf fermingarstarfs veturinn 2010 – 2011 boðum við foreldra þeirra barna í hópum A, B og C á fund til okkar í kirkjunni þriðjudaginn 7. september kl 17.00.

Foreldrar fermingarbarna í hópum D, E og F boðum við á fund til okkar í kirkjuna þriðjudaginn 17.október kl 17.00

Á þessum fundum munum við fara í gegnum hvernig fræðslunni verður háttað og svara þeim spurningum sem upp koma. Fermingarfræðslan sjálf fyrir hópa A, B og C hefst svo þriðjudaginn 14. september kl 17.30 og fyrir hópa D, E og F þriðjudaginn 26. október kl 17.30.