Erum í bænum og messum í Árbæjarkirkju kl.11.00. sr. Þór Hauksson, Kristina Kalló organisti. Karl kirkjuvörður og kórfélagar taka vel á móti þér og þínum. Skjól fyrir öllum veðrum, þægileg sæti og góð tónlist sem leikur við hugan á milli þess að hið talaða orð fær að njóta sín. Taktu upp tjaldhæla hugarfarsins áður en ösin byrjar og láttu sjá þig í messu í Árbæjarkirkju á sunnudaginn. Við kunnum að taka vel a móti þér og þínum. Létta veitingar á eftir.