Á sunnudaginn verður guðsþjónusta með einfaldara sniði.  Við komum saman í kirkjunni kl. 11 og notum svipað form og á kyrrðatstundunum okkar.  Ritningarlestur, bæn og íhugun.  Félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórn organistans okkar Krisztinu Kalló Szklenár.  Umsjón með stundinni hefur sr. Sigrún Óskarsdóttir.  Karl kirkjuvörður hellir upp á könnuna og bíður upp á kaffi og sætt með því að stundinni lokinni.  Velkomin í kirkjuna á sunnudag!