Gönguguðsþjónusta verður sunnudaginn 20. júní kl. 11.  Lagt af stað frá klukknaportinu og gengið sem leið liggur "stífluhringinn"  sem Árbæingum er að góðu kunnur.  Þetta er þægileg gönguferð á sunnudagsmorgni og reglan einfaldlega sú að sá/sú sem fer hægast yfir stjórnar ferðinni!  Guðfræðingurinn og æskulýðsfulltrúinn Sigríður Rún Tryggvadóttir hefur umsjón með guðsþjónustunni.  Sálmar sungnir og ritningarlestrar lesnir á áningarstöðum á leiðinni.  Sigríður fer með hugleiðingu.  Félagar úr kirkjukórnum verða forsöngvarar.  Kaffisopi í kirkjunni þegar heim er komið.  Ef veður verður ekki skaplegt verður stundin einfaldlega færð inn í kirkjuna og í stað gönguferðar verður stutt helgistund að sunnudagsmorgni.  Velkomin í Árbæjarkirkju.