Kvennakirkjan heldur guðþjónustu í Árbæjarkirkju sunnudaginn 18. apríl klukkan 20. Yfirskrift messunnar er: Hvað hefur trúin gert fyrir mig til að auðga líf mitt. Kvennakirkjukonurnar Ingibjörg Kjartansdóttir og María Teresa Belles prédika. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.