Gönguguðsþjónusta verður í Árbæjarkirkju sunnudaginn 16. ágúst.  Lagt af stað frá kirkjunni kl. 11 og gengið í Elliðaárdal.  Lesnir verða ritningarlestrar, sungnir sálmar og hugleiðing flutt á leiðinni.  Þetta verður róleg ganga, við njótum fegurðar náttúrunnar og eigum saman góða morgunstund.  Það verður heitt á könnunni þegar göngunni er lokið.  Verið velkomin í Árbæjarkirkju.