Jólastund sunnudagaskólans og Fylkis sunnudaginn 14. desember kl.11.00

Við hefjum daginn með fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni kl.11.00.  Í heimsókn koma leikhópurinn Perlan.  Börn úr Tónskóla Sigursveins.  Barnakór Árbæjarkirkju og leikhópur æskulýðsfélagsins Lúkasar.

Jólaball í safnaðarheimili að gömlum góðum sið.  Dönsum í kringum jólatréð og ekkert verður til sparað í söng og hreyfingum.  Kirkjan og Fylkir saman að þessum jólafagnaði.

Hressir bræður úr Esjunni koma og gefa þægum börnum eitthvað gott!

Komum saman í kirkjuna á sunnudag og eigum gott samfélag!