Sunnudaginn 23. nóvember síðasta sunnudag fyrir aðventu er guðsþjónusta kl.11.00.  sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.  Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztine K. Szklenár.  Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. 

Tónleikar Gospelkórs Árbæjarkirkju kl.20.00 sunnudaginn 23. nóvember sem jafnframt er upphaf afmælisvikunnar.  Sjá nánar dagskrá hér á síðunni.  Hvetjum safnaðarfólk til að koma og eiga góða uppbyggjandi stund í kirkjunni sinni!