Almenn guðsþjónusta kl.11.00.  Látinna minnst. sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. sr. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur Hofsósi prédikar. Krizstina Kalló organisti leiðir kirkjukórinn og almenna kirkjugesti í safnaðarsöng.  Minningarkerti til tendrunar. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.  Kirkjukaffi á eftir. 

Léttmessa kl.20.00

Hin hugljúfa söngkona Guðrún Gunnarsdóttir mun koma fram á Allra heilagra messu, annarri léttmessu vetrarins. Guðrún hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna með ómþýðri röddu og mun heiðra kirkjugesti með nærveru sinni og söng sunnudaginn 2. nóvember kl.20.00.  Kirkjugestum gefst tækifæri á að tendra á minningarkertum á meðan á stundinni stendur.

Kirkjukórinn með kaffisölu í safnaðarheimilinu!

Kökuhlaðborð kr. 500