Sunnudaginn 5. október er guðsþjónusta kl.11.00.  sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.  Krisztina K. Szklenár organisti og kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.   Matthías Birgir Nardeu leikur á Óbó.  Opnun sýningar "Frá hugmynd til veruleika." (sjá frétt hér að ofan)  Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar!

Af gefnu tilefni viljum við minna foreldra fermingarbarna á að fylgja börnum sínum í guðsþjónusturnar!

Fyrsta Léttmessa vetrarins kl.20.00

sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Einar Örn Björgvinsson guðfræðinemi sjá um guðþsþjónustuna.  Ivar Helgason leikari og tónlistarmaður sér um tónlistina.  Unglingar úr Ice Step hóp kirkjunnar verða með kökusneiðasölu eftir stundina til styrktar ferð sinni til New Jersey á næsta ári!

Sjáumst á sunnudaginn!