Það er komin vorfiðringur í starfið í Árbæjarkirkju.  Við ætlum að fagna vori og brosandi   sunnudaginn 27. apríl.  Hátíðin hefst kl.11.00 með fjölskylduguðsþjónustu.  Ungir iðkendur Fylkis heiðra okkur með nærveru sinni eins og alltaf á degi sem þessum.  Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á grillaðar pylsur og það verður farið í leiki – heyrst hefur að hlaupin verður stífluhringur og sitthvað fleira verður sér til gamans gert. 

Takið daginn frá og sameinumst um að gera hann skemmtilegan!