Sunnudaginn 6. apríl er guðsþjónusta kl.11.00.   sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.  Krisztina Kalló Szklenár organisti.  Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.  Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar á sama tíma.  Léttar veitingar á eftir.

Léttmessa kl.20.00.  Hjónin Ellen Kristjánsdóttir söngkona mun ásamt eiginmanni sínum Eyþór Gunnarssyni flytja ljúfa og þægilega tónlist eins og þeim er einum lagið.  Eftir messuna verður Ice -Step hópurinn með fjáröflun en þau ætla að selja kökusneiðar sem hægt er að renna niður með kaffinu.