Hættan er ljós!

Hafið er átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Þetta er fimmta árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“.

Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól.

8 deyja árlega úr sortuæxlum á Íslandi

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali um 50 manns á ári með sortuæxli í húð, rúmlega 50 með önnur húðæxli og um 220 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum. Ár hvert deyja að meðaltali átta Íslendingar úr sortuæxlum í húð.

„Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mikið á síðustu árum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. Leitað verður til presta landsins um að leggja málefninu lið, eins og undanfarin ár," samkvæmt vef Landlæknisembættisins.

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu ár hefur dregið úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni nú er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni með því að minna á hættuna.

Þessi frétt er tekin af vef www.mbl.is