Það er tónlistaguðsþjónusta á sunnudaginn – eins og allir vita er boðið upp á tónlistaguðsþjónustur þriðja sunnudag hvers mánaðar.  Á sunnudaginn verður Taizé guðsþjónusta.   Taizé guðsþjónusta á uppruna sinn að rekja til Suður Frakklands nánar tiltekið til bæjarins Taizé.  Söngurinn byggist á endurteknu söngstefi sem kallar fram hughrif kyrrðar.  Það er við hæfi í föstunni að koma til kirkju og njóta og eigna sér hlut í fallegri tónlist.  Krisztina Kallo Szklenár leiðir sönginn ásamt kirkjukórnum.  sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.  Magnea Árnadóttir flautuleikari leikur undir.