Guðsþjónusta kl.11.00 sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.  Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn organistans Krisztine K. Szklenár.  Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu.   Kaffiveitingar á eftir. 

Listanefnd Árbæjarkirkju stendur fyrir opnun nýrrar listsýningar í kirkjunni sunnudaginn 3.febrúar að lokinni guðsþjónustu kl. 11:00.

Að þessu sinni mun myndlistamaðurinn og textílhönnuðurinn Guðrún Gunnarsdóttir sýna verk sín í fordyri kirkjunnar. (Sjá nánar undir liðnum "á næstunni" hægra megin á síðunni)

Fyrsta Léttmessa ársins 2008 verður næstkomandi sunnudag þann 3.febrúar klukkan 20:00. Það er hinn frábæri Gospelkór Árbæjarkirkju undir stjórn Þóru Gísladóttur sem að mun flytja tónlist ásamt hljómsveit. Kristín Björnsdóttir kennari og doktorsnemi í fötlunarfræðum mun flytja hugvekju. sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.