Næstkomandi sunnudag 25. febrúar er fyrsti sunnudagur í föstu.  Guðsþjónusta er kl.11.00.  Fyrir altari þjónar sr. Þór Hauksson – Krizstina Kalló Szklenár orgelleikari, krikjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.  Á sama tíma í safnaðarheimilinu er sunnudagaskólinn í syngjandi gleði.  Á eftir er boðið upp á kirkjuhressingu, kaffi, ávaxtasafa, kex og ómissandi gulrætur í Fylkislitunum.   Láttu sjá þig!