Sá landskunni tónlistamaður Þorvaldur Halldórsson mun leiða tónlistina í guðsþjónustunni þ.18. febrúar.  Eins og ykkur er kunnugt þá má ganga að því vísu að þriðja sunnudag í hverjum mánuði er tónlistaguðsþjónusta.   Leitast er við að hafa tónlistina fjölbreytta þannig að þessar guðsþjónustur höfði til sem flestra.    Eins og nafnið gefur til kynna er tónlistin í hávegum höfð í tónlistaguðsþjónustunum.  Orðið og útlegging þess á alltaf sinn stað hvort heldur í tónlistar eða almennum guðsþjónustum.  Fyrir altari á sunnudaginn þjónar sr. Sigrún Óskarsdóttir.