Fermingarfræðslan í Árbæjarkirkju byggist upp á tveimur námskeiðum á haustin, annaðhvort ágústnámskeiði eða septembernámskeiði sem fermingarbörnin sækja en svo sameinast þau í fjölbreyttum fræðslusamverum yfir veturinn ásamt því að koma reglulega í guðsþjónustur. Fermingarfræðarar eru sr. Þór Hauksson, sr. Bjarki Geirdal, Aldís Elva Sveinsdóttir æskulýðsfulltrúi ásamt æskulýðsleiðtogum kirkjunnar.

Fermingardagar 2027
- Sunnudagurinn 14. mars 2027 kl. 11:00
- Sunnudagurinn 14. mars 2026 kl. 13:00
- Laugardagurinn 20. mars 2027 kl. 13.00
- Pálmasunnudagur 21. mars 2027 kl. 11:00
- Pálmasunnudagur 21. mars 2027 kl. 13:00
- Skírdagur 25. mars 2027 kl. 11:00
Skráning
Skrá þarf barnið í gegnum skráningarkerfið hér á heimasíðunni. Ef eitthvað kemur upp á og breyta þarf skráningu þá vinsamlegast sendið póst á bjarkigg@kirkjan.is og thor@arbæjarkirkja.is
Upplýsingar
Við notum tölvupóst í samskiptum við foreldra og er því mikilvægt að netföng séu rétt skráð. Vinsamlegast látið vita ef þið fáið ekki tölvupóst frá okkur. Stofnaður hefur verið lokaður hópur á Facebook til að miðla upplýsingum til foreldra fermingarbarna og eru foreldrar beðnir að óska eftir aðgangi. Slóðin er hér. Árbæjarkirkja Fermingar vorið 2027
Messur og þátttaka í helgihaldi
Ætlast er til að fermingarbörnin mæti ekki sjaldnar en 10 sinnum í almenna guðsþjónustu (eða 8 sinnum í messu og 2 sinnum í Æskulýðsfélagið saKÚL).
saKÚL
Æskulýðsfélagið saKÚL er fyrir unglinga á aldrinum 13-18 ára. Þar er fjölbreytt og spennandi dagskrá yfir veturinn sem unglingarnir taka sjálfir þátt í að móta. Fundir eru á fimmtudagskvöldum kl. 20:15-21:45. Mögulegt er að fá 2 stimpla í Kirkjulykilinn fyrir þátttöku í saKÚL. Börnin þurfa sérstaklega að skrá sig í saKÚL ef þau vilja taka þátt í því.
Ritningarvers
Fermingarbörnin velja sér sjálf í vetur ritningarvers sem þau læra utan að og fara með í fermingarathöfninni. Velja má hvaða vers sem er úr Biblíunni en hér á heimasíðunni undir dálknum: Ritningarvers er að finna nokkrar tillögur.
Ferð í Vatnaskóg
Farin verður dagsferð í Vatnaskóg sem er hluti af fermingarfræðslunni 11. og 18. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar um dagskrá, verð og ferðatilhögun verða sendar í tölvupósti þegar nær dregur. Athugið að foreldrar verða sjálfir að óska eftir leyfi úr skóla fyrir börnin sín.
Fermingarfræðslugjald
Gjald fyrir fermingarfræðslu veturinn 2026-2027 er 28.000 krónur. Það verður innheimt í gegnum heimabanka í byrjun febrúar 2027.
Dagskrá fermingarfræðslunnar 2026-2027
Um er að ræða annarsvegar ágústnámskeið. Þau sem ekki geta nýtt sér þann tíma er boðið upp á samkonar námskeið í september (sjá hér að neðan).
Ágústnámskeið
Fermingarnámskeið:
- Fimmtudagur 13. ágúst 2026 kl. 9:00-13:00
- Föstudagur 14. ágúst 2026 kl. 9:00-13:00
- Mánudagur 17. ágúst 2026 kl. 9:00-13:000
- Þriðjudagur 18. ágúst 2026 kl. 9:00-13:00
Sunnudagur 16. ágúst 2026 kl. 11. Guðsþjónusta og foreldrafundur þar sem vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra.
Septembernámskeið
Fermingarnámskeið:
- Fimmtudaginn 17. september 2026 kl. 15:00-19:00
- Föstudaginn 18. september 2026 kl. 15:00-19:00
- Laugardaginn 19. september 2026 kl. 11:00-16:00
Sunnudagur 20. september 2026 kl. 11. Guðsþjónusta og foreldrafundur þar sem vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra.
Söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar
Dagsetning er ekki komin, verður auglýst þegar nær dregur.
Ferðalag í Vatnaskóg
11. nóvember 2026: Dagsferðalag í Vatnaskóg kl. 08:00-21:00. Fyrri hópur.
18. nóvember 2026: Dagsferðalag í Vatnaskóg kl. 08:00-21:00. Síðari hópur.
Sjálfstyrkingarnámskeið
Fermingarfræðsla, hópaskipting auglýst síðar. Hver hópur mætir í eitt skipti.
- 11. janúar 2027 kl. 15:00–17:00
- 18. janúar 2027 kl. 15:00–17:00
- 25. janúar 2027 kl. 15:00–17:00
- 1. febrúar 2027 kl. 15:00–17:00
Fermingarfræðsluaukatími
8. febrúar 2027 kl. 15-17.
Aukatími fyrir þau sem þurfa á því að halda.
Kyrtlamátun
22. febrúar og 1. mars 2027.
Hópaskipting auglýst síðar.
Foreldrafundur 7. mars
7. mars 2027.
Foreldrafundur eftir guðsþjónustu sem hefst kl. 11:00. Farið verður í praktíska hluti varðandi undirbúning fermingarinnar.
Fermingaræfingar
- 9. og 11. mars.
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast sunnudaginn 14. mars kl. 11.00, mæta kl. 15.30 báða dagana. - 9. og 11. mars.
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast sunnudaginn 14. mars kl. 13.00, mæta kl. 16:00 báða dagana. - 16. mars og 18. mars.
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast laugardaginn 20. mars kl. 13:00, mæta kl. 15: 00 báða dagana. - 16. mars og 18. mars.
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast Pálmasunnudag 21. mars kl. 11:00, mæta kl. 15: 30 báða dagana. - 16. mars og 18. mars.
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast Pálmasunnudag 21. mars kl. 13.00, mæta kl. 16.00 báða dagana. - 22. mars og 23. mars
Fermingaræfingar fyrir þau sem fermast Skírdagur 25. mars kl. 11.00, mæta kl. 12.00 báða dagana.
Skyldumæting er á báðar fermingaræfingarnar