Kirkjan þín – samfélagið okkar

Hefur þú athugað trúfélagsaðild þína?

Kæru íbúar hverfisins,

Kirkjan í hverfinu er mikilvægur hluti af samfélaginu okkar. Hún er staður þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, fundið hlýju, stuðning og samveru, bæði á gleðistundum og þegar erfiðleikar steðja að.

Í kirkjunni fer fram fjölbreytt og mikilvægt starf, meðal annars sálgæsla, stuðningur við fólk í sorg og erfiðum aðstæðum, aðstoð við þau sem þurfa á hjálp að halda, barna- og unglingastarf, starf fyrir eldri borgara og ýmiss konar samfélagsstarf sem styrkir tengsl og samkennd í hverfinu.

Með því að skrá þig í kirkjuna í hverfinu þínu styður þú við þetta mikilvæga starf og stuðlar að því að við getum áfram boðið upp á öflugt kirkju- og samfélagsstarf, sálgæslu, stuðning og aðstoð við þau sem þurfa á því að halda.

Við hvetjum þig því til að gefa þér smá stund til að athuga trúfélagsaðild þína og ganga úr skugga um að skráningin sé í samræmi við þínar óskir.

Hvernig athugar þú trúfélagsaðild þína?

Þú getur farið inn á heimasíðu Þjóðskrár Íslands, www.skra.is, skráð þig inn með rafrænum skilríkjum og yfirfarið trúfélagsskráningu þína.

Við hvetjum þig til að athuga skráninguna fyrir 1. desember 2026.

Saman stuðlum við að lifandi kirkju og hlýlegu samfélagi þar sem allir eiga sitt pláss og enginn þarf að standa einn.

Með hlýjum kveðjum og þökk fyrir stuðninginn,

Prestarnir og sóknarnefnd Árbæjarsafnaðar