Árbæjarkirkja er að byrja nýtt og spennandi barnakórastarf miðvikudaginn 2. september 2026. 1-4. bekkur æfa miðvikudaga kl 16-16:40 og 5-7. bekkur æfa miðvikudaga kl 17-17:50. 3000 kr. þátttökugjald er greitt fyrir skólaárið. Auk þess að hafa gaman af því að syngja saman leggjum við einnig áherslu á hópefli og munum enda hverja önn með jóla/vortónleikum. Skráning og nánari upplýsingar má finna í gegnum barnakor@arbaejarkirkja.is.