Árbæjarkirkja auglýsir eftir Barnakórstjóra😁
Árbæjarkirkja leitar að öflugum og metnaðarfullum kórstjóra fyrir nýjan barnakór.
Árbæjarkirkja er einn stærsti söfnuður landsins í barnmörgu hverfi með 4 grunnskólum. Enginn barnakór er í hverfinu og eru því sóknarfærin mikil.
Kórstjórinn vinnur í nánu samstarfi við organista, presta og æskulýðsfulltrúa. Kórinn er safnaðarkór og tekur virkan þátt í helgihaldi og tónlistarlífi kirkjunnar 2- 3 á önn.
Starfshlutfall er 30% með möguleika á auknu starfshlutfalli.
Launagreiðslur miðast við kjarasamning FÍH / Félags íslenskra kórstjóra við Þjóðkirkjuna.
Umsóknarfrestur til til 20. júni 2026
Helstu kröfur:
Menntun og reynsla í kórstjórn er áskilin auk þekkingar á raddbeitingu sem hentar barnasöng. Góð færni í hljómborðsleik er kostur.
Lögð er áhersla á færni í mannlegum samskiptum
Íslenskukunnátta er skilyrði
Helstu verkefni:
Stofnun nýs barnakórs og skipulagning hans.
Þátttaka í helgihaldi 2-3 á önn
Vikulegar kóræfingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Sigurðsson, organisti og tónlistarstjóri Árbæjarkirkju, á netfangið organisti@arbaejarkirkja.is eða í síma 899-5253
Með umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsókn skilast inná vef Alfreðs.
Valnefnd sendir tillögu að ráðningu til sóknarnefndar.
Starfsupphaf er 1. ágúst næstkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stofnun nýs barnakórs og skipulagning hans.
Þátttaka í helgihaldi 2-3 á önn
Vikulegar kóræfingar
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og reynsla í kórstjórn er áskilin auk þekkingar á raddbeitingu sem hentar barnasöng. Góð færni í hljómborðsleik er kostur.
Auglýsing birt
20. maí 2026
Umsóknarfrestur
20. júní 2026