Skráning í fermingarfræðslu Árbæjarkirkju fyrir þau ungmenni sem hyggjast fermast í Árbæjarkirkju vorið 2025 fer fram á heimasíðu kirkjunnar og hefst fimmtudaginn 18. april 2024 kl. 12:00

Boðið er upp á tvo valkosti á fermingafræðslunámskeiðunum. Annars vegar námskeið í ágúst dagana 14.-19. ágúst 2024 eða hinsvegar námskeið í september dagana 19.-22. september 2024.

Allar nánari upplýsingar um fermingardaga og tilhögun fermingarfræðslunnar er að finna á heimasíðu Árbæjarkirkju undir flokknum fermingar.