Guðsþjónusta kl. 11 og foreldrafundur fermingarbarna vorsins strax eftir guðsþjónustuna. Sr. Þór Hauksson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjóna. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur, Thelmu Rósar Arnarsdóttur og Sigurðar Óla Karlssonar.

Batamessa kl. 17. Vinir í bata sem stunda tólfspora-starfið í kirkjunni halda utan um guðsþjónustuna. Vitnisburðir, fjölbreytileg bænaiðkun, ljúfir söngvar og altarissakramentið haft um hönd. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og kruðerí eftir stundina.